Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, segir að hún og stjórn KSÍ hafi ekki lengur haft trú á því að Arnar Þór Viðarsson væri rétti maðurinn til að leiða landsliðið að markmiðum sínum. Því hafi hann fengið reisupassann í dag.
„Ég skil gagnrýnina á tímasetninguna. En þegar stjórnin hefur ekki trú og traust og við höldum ekki að þjálfarinn sé rétti maðurinn þá verðum við að taka svona ákvörðun,“ segir Vanda í samtali við Fréttablaðið, en að hennar sögn er þetta í fyrsta sinn sem það er rætt að láta Arnar fara.
Arnar hefur þurft að byggja upp nýtt landslið undanfarin ár og fékk hann tíma til þess. Vanda sagði hins vegar nýverið að nú væri kominn tími á að ná í úrslit.
„Við vorum í uppbyggingu og ákváðum að við þyrftum að sýna ákveðna þolinmæði vegna þeirra aðstæðna og breytinga sem voru. Ég sagði á ársþinginu að nú væri uppbyggingu lokið og kominn tími á árangur. Mikilvægi þess að karlalandsliðið komist aftur á stórmót er gríðarlega mikilvægt. Það er okkar hlutverk að finna leiðirnar til að gera allt til að það takist. Til þess var talið að þyrfti að skipta um þjálfara.“
Hægt er að lesa viðtalið við Vöndu hér.