Ármann Jakobsson, prófessor í íslensku og formaður íslenskrar málnefndar, vill innleiða sektarákvæði fyrir brot gegn lögum um stöðu íslenskunnar. Þetta kemur fram í frétt RÚV.
Þar segir að íslenskri málnefnd er falið að hafa eftirlit með lögunum og áminna fyrir brot, en engin viðurlög eru við þeim. „Það kostar ekkert að brjóta þessi lög og þar af leiðandi eru þau brotin,“ segir Ármann en hann var gestur Morgunvaktarinnar á Rás 1 í morgun.
Samkvæmt lögum eiga auglýsingar sem höfða til íslenskra neytenda að vera á íslensku. Brjóti fyrirtæki þessi lög getur málnefnd áminnt þau, en sem fyrr segir eru brotin refsilaus.
Í viðtalinu notar Ármann bílbelti sem dæmi og segir að bílbeltaskylda var leidd í lög árið 1981 en það var ekki fyrr en sjö árum síðar sem viðurlög voru innleidd, og þá fyrst tóku allir að spenna beltin.
„Auðvitað vilja stjórnmálamenn ekki viðurlög því þetta er ekki til vinsælda fallið, en ég held samt að við þurfum að ræða þetta í auknum mæli,“ segir Ármann.
Hægt er að lesa viðtalið í heild sinni hér.