Það virðist vera sem aprílgabb Kringlunar hafi ollið fjaðrafoki á samfélagsmiðlinum Twitter, en Sandra Ósk Jóhannsdóttir, dýravinur vakti athygli á gabbinu.
Kringlan hafði auglýst að það væri köttur laus í húsinu, hann væri á vappinu milli verslana og var myllumerkið #kringlukisa búið til til að halda um ferðir kisunnar.
Þótt það væri um grín að ræða þá finnst ekki öllum þetta gabb hjá Kringlunni fyndið. Dýravinurinn Sandra Ósk Jóhannsdóttir deildi skoðunum sínum á Twitter og var henni ekki skemmt:
„Það er ekki fyndið aprílgabb að ljúga um týnt dýr. Þetta er gríðarleg vanvirðing við þá sem týna dýrunum sínum og fyrir þá sem leggja mikinn tíma í að leita að týndum dýrum og skanna þau fyrir örmerki. Gerum betur en þetta plís.“
Færslan vakti mikla athygli og voru netverjar ekki sáttir með þetta gabb hjá Kringlunni.
Ottarr Makuch segir: „Dapurlegt og afspyrnu leilegt aprílgabb“
AtliKisi segir: „Já, þetta er smá taktlaust, verð ég að segja.“
Þá segir Sandra að hún vissi um einstakling sem gerði sér ferð í Kringluna útaf hún hélt að þetta væri týnda kisan sín.