Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, birti ansi áhugaverða mynd á Facebook síðu sinni fyrr í dag. Þar ávarpar hún landa sína og spyr þá einfaldrar spurningar:
„Þið megið taka eins mikið af hangikéti, grænum baunum, malt og appelsín til að hafa með yfir jólin á Tenerife, en hver tók með sér snjó til Paradísar? Sá skal fá að heyra það ef mér tekst að hafa upp á honum!“
Þessi sýn blasti við íbúum Tenerife í morgun, en ef betur er að gáð má sjá snjó í fjallinu sem er þarna í fjarska. Íbúar á eyjunni sólríku eru vafalaust margir hvumsa yfir snjónum, enda Tenerife þekkt fyrir allt annað en snjó.
Fréttablaðið/Skjáskot