Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife, segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa ferðast með lággjaldaflugfélaginu Ryanair frá Tenerife til Alicante.
„Ég skrapp norður til Spánar í gær, nánar tiltekið til lítils bæjar á milli Alicante og Torrevieja. Um leið sveik ég eigið flugfélag því ég tímdi ekki að kaupa mér far með Icelandair frá Tenerife Sur til Alicante með viðkomu í Keflavík, en fór í staðinn beint á milli með RyanAir, reyndar frá Tenerife norte,“ skrifar Anna í færslu á Facebook.
Ferðalagið á flugvöllinn hafi gengið að óskum.
„En skömmu áður en vélin frá Ryan Air lenti barst þokubakki inn á flugbrautina og ég fór að óttast hið versta, enda flugvöllurinn frægur að endemum, einmitt vegna þokunnar, en brautin er í um 630 metra hæð yfir sjávarmáli. Allt fór samt vel og vélin lenti heilu og höldnu, reyndar aðeins á eftir áætlun,“ skrifar Anna, og heldur áfram:
„Svo byrjuðu lætin. Um leið og síðasti farþeginn var kominn út, var byrjað að hleypa inn og þar sem ég sat í næstfremstu sætaröðinni fylgdist ég með af athygli er flugþjónninn reyndi að reka á eftir farþegunum inn í vélina. Merkilegt nokk, þeim tókst að vinna upp seinkunina með hörkunni, við komumst í loftið á ásættanlegum tíma og lentum í Alicante á réttum tíma,“ skrifar Anna, sem segist nú hafa kynnst því hvernig það sé að ferðast með lággjaldaflugfélagi.
„Stór hópur barna og unglinga voru í vélinni á leið á eitthvert Taekwondo mót á Spáni og þau voru ekki hljóðlátustu farþegar sem hugsast getur,“ skrifar Anna.
Hún hafi því neyðst til að lækka í heyrnartækjunum alveg niður í mínus átta.
„Svo fannst mér eins og ró væri farin að færast í mannskapinn og ég hækkaði aftur í +3. Það var ekki góð ákvörðun, því í stað þess að njóta lendingarinnar í kyrrð og ró hófust slíkir skrækir og hávaði meðal unglinganna að ekki heyrðist mannsins mál og ég neyddist til að lækka aftur niður í -8 og dugði það ekki einu sinni til, ekki síst eftir nokkuð harkalega lendingu,“ skrifar Anna, og bætir við:
„Má ég þá heldur biðja um Saga Class hjá Icelandair.“