Andri hjólar í Morgunblaðið: „Er boðlegt fyrir fagfólk að vinna undir svona stjórn?“

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason virðist vera allt annað en sáttur með Morgunblaðið, þá sérstaklega vegna Staksteina dagsins í dag.

Í Staksteinunum er vitnað til skrifa Páls Magnússonar kennara og gert lítið úr loftslagsbreytingum og aðgerðum við þeim.

„Hamfaraspámennskan er stóriðnaður sem freistar þess að valta yfir þau sannindi að náttúran en ekki maðurinn stjórnar veðrinu.“ segir í Staksteinum.

Í Facebook-hópnum Fjölmiðlarnördar birti Andri færslu í dag, en þar sáust Staksteinarnir og spurði Andri:

„Hvað lætur fagfólk yfir sig ganga sem vinnur á þessum fjölmiðli? Er boðlegt fyrir fagfólk að vinna undir svona stjórn? Er engin umræða innanhúss um að mæta ekki til vinnu og mótmæla þessu formlega? Er þolinmæðin takmarkalaus á meðan heimurinn brennur?“

Fleiri fréttir