Andrea Róberts skrifar um konur í stjórn­málum: „Ég heyri ekki hvað þú segir þú ert í svo ljótum jakka“

„Ef stjórn­mála­konur líta ekki þokka­lega út hættir fólk að heyra hvað þær segja. Fólk horfir á mig í sjón­varpinu og skoðar hárið á mér, fötin og förðunina og ef það er ekki í lagi er eins og það fari allt fyrir ofan garð og neðan sem ég segi,“ er haft eftir Ingi­björgu Sól­rúnu Gísla­dóttur í blaða­við­tali fyrir all­nokkrum árum,“ svona hefst pistill Andreu Róberts­dóttur í Frétta­blaðinu í dag.

Andrea er fram­kvæmda­stjóri Fé­lags kvenna í at­vinnu­lífinu og fer yfir þann tvö­falda standard sem konur þurfa oft að mæta og hvernig níð­yrði hafa breyst.

„Það fer eftir stund og stað hvað telst töff, flott og æski­legt hverju sinni en ó­hætt er að full­yrða að fatnaður er enn mjög merkingar­bær. Hvort: „Ég heyri ekki hvað þú segir þú ert í svo ljótum jakka,“ sé mögu­leg sena í nú­tímanum get ég ekki full­yrt en það er vitað mál að sam­fé­lagið tekur ó­líkt og mjög kyn­bundið á móti okkur og fjöl­margar breytur spila þar inn í – allt það ó­sagða en síðan eru það orðin sjálf sem tengir okkur og við tjáum okkur með, tungu­málið sem við höndlum með þurfum við alltaf að skoða og þróast í takt við nýja tíma,“ skrifar Andrea.

„Öllu má nú venjast, meira að segja mis­réttinu og mál­hefð sem stenst ekki tímans tönn verður að af­baka. „Að hlaupa eins og kerling“ hefur verið notað sem ó­yrði í gegnum árin og „frekjur“ eru á­kveðnar konur sem láta ekki alveg allt yfir sig ganga og þannig má lengi telja. Má ekkert lengur? Jú, það má sannar­lega hætta að nota viður­kennda frasa sem er farið að slá í sem gengis­fella og smána. Kynjað tungu­mál þarf að ræða sem og inn­byggt óþol fyrir orðum, skoða karl­lægan talanda, mál­hefðir og orð.“

„Í pistli Sig­mundar Ernis Rúnars­sonar í Frétta­blaðinu ekki fyrir alls löngu taldi hann lík­legt að sam­fé­lagið væri ekki komið lengra í jafn­réttis­málum en svo „að konur sem láta í sér heyra á vinnu­markaði eru sagðar vera frekar, en karlar sem haga sér með sama hætti teljast vera á­kveðnir,“ og vísaði þar í frétt af einu hlað­konunni á Reykja­víkur­flug­velli. Dr. Gyða Margrét Péturs­dóttir prófessor í kynja­fræði við HÍ velti einnig fyrir sér, í kjöl­far af sama frétta­máli, spurningum um við­horf og orð­ræðu að konur hafi eftir allt „minna rými en karlar til tjáningar og at­hafna í störfum.“

„Það er því ekki að á­stæðu­lausu að erindi um orð og tungu­málið verði á dag­skrá ráð­stefnu Jafn­vægis­vogar FKA sem fer fram 12. októ­ber nk. í beinni út­sendingu á ruv.is. Þar verður Bragi Valdimar Skúla­son, ís­lensku-, tón­listar-, markaðs- og sjón­varps­manneskja, með erindið „Alls­kyns orð“ þar sem hann veltir fyrir sér kyn­ferðis­málum og jafnaðar­geði ís­lenskar tungu frá ýmsum hliðum á sinn ein­staka hátt. Kynntu þér spennandi dag­skrá ráð­stefnu Jafn­vægis­vogarinnar sem er opin al­menningi – þar verða fleirum en Braga Valdimari tungu­mál. Skjáumst!“ skrifar Andrea að lokum.

Fleiri fréttir