Ragga Holm á aðeins eina minningu af blóðmóður sinni á lífi. Fíknivandi móðurinnar erfðist milli kynslóða og glímdi Ragga við marga drauga áður en líf hennar komst á réttan kjöl.
„Ég kynntist aldrei blóðmóður minni og hitti ekki móðurfjölskylduna fyrr en í jarðarförinni hennar,“ segir Ragga í viðtali í helgarblaði Fréttablaðsins í dag.
Þar kemur fram að móðir Röggu barðist alla tíð við mikla fíkn og lifði flest sín ár á útjaðri samfélagsins.
„Ég kynntist þessari mömmu aldrei en ég man að ég fékk að hitta hana þegar ég var sjö ára,“ segir Ragga í viðtalinu en það er eina minningin sem HÚN á af móður sinni á lífi en hún lést aðeins 43 ára gömul.
Andlátið var rannsakað sem morð og lá eiginmaður hennar undir grun. Hann fyrirfór sér svo aðeins mánuði síðar.
Ragga fer yfir tengsl sín við fjölskyldu móður hennar og hvað gerðist eftir andlátið í viðtalinu. „Það er alltaf sagt að maður fái sitt lítið af hverju af genum foreldra sinna og ég kenndi alltaf mömmu um hvernig áfengi og annað hafði áhrif á mig.“
Ragga segir einnig frá líkamsárás sem hún varð fyrir árið 2015 og hvernig hún endaði svo sjálf inni á Vogi.
Viðtalið er hægt að lesa í heild sinni hér.