Almar Yngvi látinn

Maðurinn sem lýst var eftir síðdegis í gær fannst látinn í kvöld. Hann hét Almar Yngvi Garðarsson og var 29 ára. Hann lætur eftir sig sambýliskonu og einn son. Frá þessu er greint í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þar segir að ekki sé talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.

„Aðstandendur vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem aðstoðuðu við leitina,“ segir að lokum í tilkynningu lögreglunnar.

Fleiri fréttir