Alma Mjöll Ólafsdóttir blaðamaður veltir upp spurningum um heimsendi í pistli sínum í nýjasta tölublaði Stundarinnar í ljósi skjálftavirkninnar á Reykjanesinu og líkir árinu 2020 við stóran jarðskjálfta.
Hún hefur líkt og stór hluti landsmanna fundið fyrir jarðskjálftum sem riðið hafa yfir Reykjanesið og höfuðborgarsvæðið og í eitt andartak, svona í kringum þúsundasta jarðskjálftann eins og hún orðar það, stoppaði hún og velti fyrir sér í eitt stundarkorn hvort heimsendir væri yfirvofandi.
„Ég áttaði mig svo á því að líklegast væri heimurinn ekki á enda, en í þetta eina litla augnablik var tilhugsunin raunveruleg,“ skrifar Alma og lýsir því hvernig hún hefur hrokkið við þegar stór jörðin skalf og nötraði vegna skjálfta að stærð fimm, sennilega skjálfta númer þrjú þúsund.
„Þegar ég hugsa aðeins aftur í tímann hefur mér brugðið ansi oft síðasta árið. Ætli árið 2020 hafi ekki verið næstum því fimm á Richter með nokkrum stærri og minni skjálftum? Er kannski ekki bara eðlilegt að hugmyndin um heimsenda hafi gert sig heimakæra þegar í 365 daga hef ég verið hrist nánast daglega með hugmyndum og veruleika sem ég hélt fyrir 378 dögum að væri óhugsandi?“ spyr Alma í pistli sínum og veltir fyrir sér hvort það sé kannski hlægilegra en hugmyndin um heimsenda að hlæja að fólki sem hugsar til heimsenda.
Ljóst er að árið 2020 hafi verið viðburðarríkt og erfitt ár fyrir marga. Tvö snjóflóð féllu á Flateyri og eitt í Súgandafjörð í byrjun ársins 2020 sem olli flóðbylgju sem gekk yfir Suðureyri. Ný kórónaveiru barst til lands í febrúar og í lok ársins 2020 bárust fréttir um miklar aurskriður á Seyðisfirði sem ollu gríðarlegu tjóni. Líkt og Alma bendir á heyjum við enn baráttu við hamfarahlýnun og á síðustu vikum hafa íbúar á Reykjanesi og á höfuðborgarsvæðinu fundið fyrir allmiklum hristingi í jarðskjálftahrinunni og enn er möguleiki á eldgosi.
„Er ekki eðlilegt að verða hræddur þegar heimurinn hagar sér svona? Er ekki eðlilegt að þegar maður hugsi um það versta sem gæti gerst, þegar það versta hefur þegar gerst og orðið hversdagslegt?“
Alma áréttar að hún telji ekki heimsendi yfirvofandi en veltir fyrir sér hvort einhverjum hefði dottið í hug að það gæti komið heimsfaraldur áður en kórónaveiran fór að gera vart við sig. Er það nokkuð óeðlilegt að hugsa um heimsendi í ljósi stöðunnar? „Hættum að gera grín að hræddu fólki,“ skrifar Alma.