Alma hvetur karlmenn til að leita sér hjálpar og fagnar konum sem stíga fram í nýjustu #metoo bylgjunni

Alma D. Möller, land­læknir, fagnaði þeim konum sem hafa stigið fram í nýjustu #met­oo bylgjunni í kjöl­far máls fjöl­miðla­mannsins Sölva Tryggva­sonar.

Alma var gestur í Vikunni hjá Gísla Marteini í kvöld en um er að ræða síðasta þátt vetrarins. Alma hvatti karl­menn í þættinum til að leita sér hjálpar.

Alma sagðist styðja þær konur sem hafa stigið fram og greint frá of­beldi sem þær hafa verið beittar. Þetta sagði Alma þegar mál Sölva var rætt í þættinum í kvöld.

Aðrir gestir þáttarins í kvöld voru þær Katrín Jakobs­dóttir, for­sætis­ráð­herra, og Kristín Jóns­dóttir, hóp­stjóri náttúru­vá­r­vöktunar á Veður­stofunni

Skjáskot/RÚV

Fleiri fréttir