Á Facebook hópnum Leiga á hefur heit umræða skapast vegna auglýsingu á herbergi í húsi í miðbæ Reykjavíkur.
Í auglýsingunni kemur fram að um sé að ræða lítið herbergi í húsi þar sem tveir leigjendur búa nú fyrir. Herbergið er 25 fermetrar og deila leigjendurnir eldhúsinu saman.
Það sem hefur vakið mesta athygli er að leigan á herberginu er tvö hundruð þúsund krónur á mánuði, en margir hafa tjáð sig um þessa himinháu leigu í kommentakerfinu og eru ekki sáttir með stöðu mála á leigumarkaðnum.
Einn meðlimur hópsins segir: „200k til að deila eldhúsi? Ertu klikkuð?“
Annar segir: „Ótrúleg græðgi“
Þá bendir einn meðlimur hópsins á að bráðlega mun fólk þurfa að búa í tjöldum, húsnæðismarkaðurinn sé einfaldlega í rugli.
Leigjendurnir sem settu inn auglýsinguna hafa verið duglegir að svara kommentum frá fólki, en margir hafa farið í persónulegar árásir gegn þeim. Þær hafa hins vegar bent á að það er eigandi hússins sem ákveður leiguna, ekki þær.