Alls eru fimmtán inniliggjandi á Landspítalanum alvarlega veik vegna COVID-19. Í gær greindust 67 smit og fimm voru lagðir inn á Landspítalann.
Almannavarnir og yfirmenn Landspítalans búast við fjölgun smita eftir verslunarmannahelgina, að það verði mikið að gera í sýnatöku og að innlögnum á spítalann eigi eftir að fjölga. Unnið er að því að opna aðra göngudeild til anna innlögnum.
„Þetta er mikill fjöldi smitaðrar og þó svo að hlutfall þeirra sem veikjast illa, eða alvarlega, sé lægra en áður þá er fjöldinn orðinn svo mikill að það eru fimmtán inniliggjandi og tveir á gjörgæslu. Álagið á spítalanum er mjög mikið og staðan er orðin mjög þung, bæði vegna viðbótarálags í tengslum við COVID-19 en líka vegna annarra bráðra veikinda. Þetta er þung staða,“ sagði Runólfur Pálsson, yfirmaður COVID-göngudeildar Landspítalans, í samtali við Fréttablaðið.
Upplýsingafulltrúi almannavarna segir skilaboð almannavarna skýr og að þau biðli til fólks að mæta ekki til vinnu á morgun séu þau með minnstu einkenni, heldur eigi fólk að drífa sig í sýnatöku.