Blóðbankinn sendi út ákall í dag til blóðgjafa í gegnum Facebook eftir að hafa einungis fengið 1 poka af blóði þegar klukkan var orðin 12:20 í dag.
„Hvar ertu ef þú ert ekki á leiðinni?"BÆNG",“ skrifaði fulltrúi Blóðbankans.
Til að mæta þörfum samfélagsins þarf Blóðbankinn um 16.000 blóðgjafa á ári eða 70 blóðgjafa á dag samkvæmt vefsíðu þeirra. Í gær sendi Blóðbankinn frá sér færslu um að mikil vöntun væri á O plús, O mínus og A plús blóði.
Þó nokkrir netverjar hafa sett athugasemdir við færsluna og bent á að þeir geti ekki sumir gefið blóð. Ein kona sem er fædd og uppalin í Suður-Ameríku bendir á að hún megi ekki gefa blóð, önnur segir lyfin sín koma í veg fyrir blóðgjöf. Einn maður með húðflúr spyr hvort bankinn vilji blóðið hans og svarar Blóðbankinn játandi, en sex mánuðir þurfi að líða á milli. Hægt er að lesa nánar til um blóðgjöf á vef Blóðbankans.
Fréttablaðið greindi frá því fyrir nokkru að Samtökin '78 hafi skorað á yfirvöld að breyta reglum um blóðgjöf hinsegin karlmanna. Ísland er eftirbátur í blóðgjafarmálum ásamt Króatíu, Malasíu og Ukraínu. Nær allar Evrópuþjóðir leyfa blóðgjöf með einhverjum takmörkunum. Sautján lönd, þar á meðal Rússland og Spánn, hafa engar takmarkanir varðandi blóðgjöf.