Ætlar að fagna sóttkví með góðum bjór

Elliði Vignisson bæjarstjóri er nú í sóttkví ásamt 99 íbúum Þorlákshafnar í kjölfar hópsmits í bænum. Hann var í viðtali hjá Fréttablaðinu í morgun þar sem hann sagðist blessunarlega hafa sloppið við COVID.

Að viðtalinu að dæma er hann nokkuð bjartsýnn fyrir helginni og ætlar sjálfur að fagna sinni þriðju sóttkví með því að fá sér góðan bjór sem hann keypti sér áður en hann fór í sóttkvína.

„Áður en ég lenti í sóttkví keypti ég mér ofboðslega góðan bjór sem ég ætla að geyma fram á sunnudag; halda upp á sóttkvína með góðum bjór,“ sagði bæjarstjórinn.

Nú hafa fjórtán íbúar greinst með COVID-19 og í dag fóru grunnskólanemar og starfsfólk grunnskólans í skimun. Von er á niðurstöðum úr einkennaskimun í dag og segist Elliði nokkur bjartsýnn þar sem allir einstaklingar sem greindu frá einkennum voru í sóttkví.

Fleiri fréttir