Eigandi bústaðar í Grundarfirði segir aðkomuna í morgun hafa verið ömurlega eftir að fjórir menn leigðu bústaðinn yfir helgina. Hjörtur Guðmundsson birti myndir á Facebook umræðu-síðunni Landið mitt Ísland.
Á meðfylgjandi myndum má sjá brotnar rúður, rifnar gardínur, óhrein gólf og drasl út um allt. Tjónið nemi um það bil 700 þúsund krónum en hann reikni ekki með að fá neitt af þessu bætt.
Hjörtur segist hafa leigt bústaðinn fjórum mönnum í gegnum íslenska bókunarsíðu. Bústaðurinn hafi verið gjörsamlega í rústi eftir helgina. Auk þess hafi mennirnir stolið sjónvarpi og útvarpi úr næsta bústað, farið inn í nærliggjandi vélageymslu og brotið rúður í Zetor drátarvél, brotist inn í gám og rótað þar til.
„Ég hélt ég væri nokkuð öruggur með aldurstakmarkið 20 ár en svo er ekki. Vil benda öðrum sumarhúsaeigendum að athuga vel hverjir eru að bóka,“ segir Hjörtur.