Aðalsteinn vill víkja og bíður þess að ráðherra hugsi málið

Ríkissáttasemjari hefur lagt það til við félags- og vinnumarkaðsráðherra að hann stígi til hliðar í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.

Í símtali við ráðherra lagði hann til að hann myndi annað hvort skipa sérstakan sáttasemjara eða sáttanefnd í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Aðalsteinn segir að ráðherra sé nú að hugsa málið.

Landsréttur sneri í dag við úrskurði héraðsdóms í máli ríkissáttasemjara gegn Eflingu en hann höfðaði mál gegn stéttarfélaginu eftir að þau neituðu að afhenda honum kjörskrá félagsins svo hann gæti framkvæmt atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu sem hann lagði fram í deilunni.

Landsréttur komst að því í dag að félagið þurfi ekki að afhenda honum kjörskrá sína og er þá málinu lokið en hann hafði áður komist að samkomulagi við félagið um að málið myndi ekki fara til Hæstaréttar.

Aðalsteinn segir að úrskurður Landsréttar hafi komið honum á óvart.

„Það sem við sitjum með er það að Landsréttur kemst að því að miðlunartillagan er löglega fram borin og einnig að ríkissáttasemjari er í fullum rétti að gefa fyrirmæli um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar en hins vegar getur ríkissáttasemjarinn ekki framkvæmt hana ef annar aðilinn neitar að afhenda kjörskrá og þar við situr,“ segir Aðalsteinn og að þetta sé sérstök pattstaða sem þau séu í núna.

Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.

Fleiri fréttir