Alls greindust 83 kórónuveirusmit innanlands í gær, eða lítið eitt færri en á föstudag þegar 87 smit greindust. Þetta má lesa úr tölum sem birtust á vef COVID.is nú klukkan 11. 22 einstaklingur eru nú á sjúkrahúsi og þrír á gjörgæslu.
Smitum hafði farið fækkandi um helgina en það skýrist af því að færri sýni eru tekin um helgar en virka daga. Þrjú smit greindust á landamærunum í gær en beðið er eftir niðurstöðu mótefnamælingar úr þeim öllum.
57 þeirra sem greindust í gær voru í sóttkví en 34 voru utan sóttkvíar. Þetta hlutfall er svipað og hefur verið undanfarna daga. 14 daga nýgengi innanlandssmita á hverja 100 þúsund íbúa er nú 253,9 og heldur það áfram að hækka.
Athygli vekur að tíu einstaklingar, undir eins árs, eru nú í einangrun vegna COVID-19 og fjórir einstaklingar, 90 ára eða eldri. Aldurshópurinn 18 til 29 ára er langfjölmennastur en 313 einstaklingar í þeim hópi eru í einangrun.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, sagði í Bítinu í morgun að við værum enn á svipuðum stað og áður þó að fjöldi smita hafi lækkað undanfarna daga. „Við erum ekki farin að sjá toppinn á þessu ennþá,“ sagði hann.