Í gær greindust 119 innanlands með COVID, af þeim voru 75 utan sóttkvíar. Þetta kemur fram á vef covid.is.
Alls eru nú 1.453 í einangrun og 2.333 í sóttkví. Flestir eru á aldrinum 19 til 29 ára og eru langflestir á höfuðborgarsvæðinu. 261 barn er einangrun og þar af tíu undir eins árs
21 er á sjúkrahúsi en það er sami fjöldi og var í gær. Ekki er ljóst hvort að einhver var lagður inn eða útskrifaður.
Alls voru tekin um 4.500 sýni og þar af um 2.600 einkennasýni.