100 í skimun eftir að tveir starfsmenn greindust með COVID

100 starfsmenn matvælafyrirtækis þurftu að fara í skimun í dag eftir að tveir starfsmenn sama fyrirtækisins greindust með COVID-19. Báðir greindust þeir utan sóttkvíar.

„Og svona til að skoða það betur erum við að skima stóran vinnustað, matvælafyrirtæki sem margir vinna hjá. Það er óljóst hvernig það gerðist innan fyrirtækisins, sóttvarnir virðast hafa verið í lagi að mestu leyti en við vildum ekki taka neina sénsa og skimuðum alla starfsmenn,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, í kvöldfréttum RÚV.

Matvælafyrirtækið er statt á höfuðborgarsvæðinu og vill Víðir meina að almenningur þurfi ekki að hafa varann á þótt um sé að ræða matvælafyrirtæki.

Fleiri fréttir