„við trúum því að brýr séu betri en múrar og að fjölbreytileiki sé styrkur en ekki vanmáttur“

„Það fór vel á því að sækja í Hávamál yfirskrift fyrir formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Í Konungsbók Eddukvæða segir „en til góðs vinar liggja gagnvegir, þótt hann sé firr farinn“. Það er alltaf stutt – gagnvegur – til góðs vinar.“

Svo hefst leiðari Davíðs Stefánssonar, ritstjóra Fréttablaðsins, í blaðinu í dag. Þar fjallar hann um mikilvægi alþjóðasamstarfs.

Hann segir að í vikunni heimsæki góðir vinir Ísland. „Forsætisráðherrar Norðurlandanna og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, funda hér í boði Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Með á fundum verða leiðtogar Álandseyja og Grænlands.“

Davíð bendir á að leiðtogarnir ætli að fjalla um nýja framtíðarsýn fyrir norræna samvinnu, umhverfismál, stöðu mannréttinda, norðurslóðir og öryggismál, þar sem sérstaklega verði horft til aukins samstarf Norðurlanda og Þýskalands.

„Norrænt samstarf er okkur mikilvægt. Við getum nánast óhindrað fært okkur á milli landa, til náms, starfa eða atvinnureksturs. Þjóðirnar eru aufúsugestir hver hjá annarri. Það sést á þeim 30 þúsund Íslendingum sem búa á Norðurlöndum og tæpum tvö þúsund Norðurlandabúum sem búa hér,“ segir hann.

Davíð bætir því við að samstarfið nái inn í nánast öll svið mannlífsins hér á landi. „Það hefur staðið svo lengi og svo mikill árangur náðst, að við erum jafnvel hætt að taka eftir því. En samvinna norrænna þjóða er ekki sjálfgefin. Hún er niðurstaða sameiginlegra ákvarðana þjóðanna um náið samtal, virðingu og vináttu.“

Hann segir að samstarf frændþjóðanna kristallist í starfsemi Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar. Þetta samstarf byggi á sögulegum og menningarlegum tengslum þar sem þjóðirnar deili grunngildum og hagsmunum.

„Norðurlöndin eru svæði mikils efnahagsstyrks og ríks félagsauðs þar sem allir eiga rétt á að njóta sín. Við sjáum ekki andstæður í öflugri velferð og þróttmiklu atvinnulífi. Við trúum því að brýr séu betri en múrar, að fjölbreytileiki sé styrkur en ekki vanmáttur, og að jafnrétti sé ekki bara réttlætismál heldur afbragðs efnahagsstefna. Við eflum nýsköpun til ábata fyrir náttúru og kröftugt athafnalíf. Við stöndum vörð um lýðræði, réttarríki og mannréttindi,“ segir Davíð.

Hann bætir því við að gagnvegir okkar liggi ekki bara inn á við heldur líka út í heim. „Þótt norrænu ríkin teljast smá á heimsmælikvarða hafa þau gott alþjóðlegt orðspor. Saman hafa Norðurlönd lagt sitt af mörkum til alþjóðasamstarfs í þágu friðar, öryggis og umhverfisverndar.“

Að lokum nefnir hann sérstaklega komu Merkel. „Þýskaland er vinaþjóð. Það er því sérstök ástæða til að fagna komu Angelu Merkel kanslara. Norðurlöndin eiga að vinna þétt með Þýskalandi til að takast á við áskoranir óróatíma á alþjóðavettvangi. Það á ekki síst við um varnar- og öryggismál. Saman geta ríkin veitt viðspyrnu þegar sótt er að alþjóðalögum og viðskiptafrelsi. Sterk grunngildi þjóðanna eiga erindi nú þegar öfga- og einangrunaröflum vex ásmegin og lítið er gert úr grundvallarreglum lýðræðis og réttarríkis.“