Veðurstofan gefur út gula viðvörun - búist er við stormi - vindhviður geta farið yfir 35 m/s

Búist er við stormi, allt að 25 m/s, hvassast á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og í uppsveitum Borgarfjarðar annað kvöld. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 m/s, einkum á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Varasamt getur verið að vera á ferðinni, sérstaklega fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, þar sem hálka getur verið á vegum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum til að forðast tjón.