Vann 124 milljónir á vesturlandi: „ég er nú bara alveg steinhissa“ – ætla að þiggja fjármálaráðgjöf

„Það var ung kona á Vesturlandi sem fékk draumasímtalið sl. mánudag þegar starfsmaður frá Íslenskri getspá hringdi í hana og tilkynnti um vinning sem hún hafði fengið á áskriftarmiðann sinn í EuroJackpot.“

Þetta kemur fram í skeyti frá Íslenskri getspá. Þar segir enn fremur að  konan og eiginmaður hennar hefðu haft miðann í áskrift og borgað fyrir það 300 krónur á viku. Konan sagði:

„Ég er nú bara alveg steinhissa“ voru hennar fyrstu viðbrögð þegar henni var sagt að um væri að ræða vinning upp á rúmar 124 milljónir. 

Þau voru hjónin að vonum alsæl með vinninginn og það öryggi sem hann veitir þeim inn í framtíðina. Ætla þau að þiggja fjármálaráðgjöf sem vinningshöfum sem vinna milljónavinninga stendur til boða.