Uppskrift: heimsins bezta bananatertan hans gauja litla – leyndarmálinu ljóstrað upp, þú átt eftir að elska þessa

Sjöfn Þórðar heimsótti Gauja litla á dögunum á Hernámssetrið að Hlöðum í Hvalfirði og fékk að njóta gestrisni hans og leiðsögn um safnið. Einnig fékk Sjöfn Gauja litla til að ljóstra upp uppskriftinni af hans uppáhalds köku sem hann bauð uppá og rann ljúflega niður enda heimsins bezta bananaterta sem undirrituð hefur smakkað.

„Hér kemur um 70 ára gömul uppskrift sem ég fékk frá henni mömmu. Þessi bananaterta hefur gengið í gegnum lífið með mér. Það voru ekki jól eða páskar án þessarar elsku,“ segir Gaui litli og brosir. „Og ég er ekki einn um að halda svona uppá þessa tertu. Til mín á safnið hafa komið aðilar sem komu til mömmu í gamla daga á tyllidögum og tala um að tertan taki þá til baka í þessar líka ljúfu minningar.  Við bökum þessa tertu á safninu hjá mér, á kaffihúsinu Hvíta Fálkanum, þar sem hún rennur yfirleitt strax út og er rómuð af gestum kaffihússins.“

Bananaterta

4 egg

200 g sykur

100 g hveiti

1 tsk. Lyftiduft 

Byrjið á því að hita ofninn í 175°gráður hita. Blandið saman eggjum og sykri í skál og hrærið vel saman. Bætið svo út í hveiti og lyftidufti. Setjið í tvö smurð meðalstór kringlótt form og bakið við 175°gráðu hita í um það bil 15 mínútur.

Krem

86 g smjör

75 g flórsykur

2 stk. stappaðir bananar

Setjið saman skál og hrærið í hrærivél óendanlega lengi, í allt að 40 mínútur.

Súkkulaðibráð

50 g suðuskúkkulaði

25 g smjör

Setjið í pott og bræðið saman við vægan hita og hrærið reglulega í pottinum á meðan. 

Þegar botnarnir hafa kólnað og kremið ásamt súkkulaðibráðinni er tilbúið er kremið sett á milli botnana. Loks er súkkulaðibráðinni hellt varlega yfir kökuna. Ef þið elskið banana þá er þessi langbezt. Njótið vel.