Um 64% fýla á íslandi eru með plast í meltingarvegi sínum

Um 64% fýla sem Umhverfisstofnun skoðaði voru með plast í meltingarvegi, þar af um 13% með yfir 0,1 g. Þetta kemur fram í niðurstöðu Umhverfisstofnunar, en stofnunin sér um vöktun á magni plasts í meltingarvegi fýla á Íslandi.

Að meðaltali voru 3,7 plastagnir í hverjum fýl. Meðalþyngd plastsins var 0,12 g/fýl, sem er sambærilegt við niðurstöður ársins 2018. Þetta er örlítið minna magn en komið hefur fram í eldri rannsóknum á plasti í fýlum hér við land.  Magn plasts er yfir þeim mörkum sem OSPAR stefnir að og fela í sér að innan við 10% fýla hafi yfir 0,1 g af plasti í meltingarvegi.

Samanborið við fýla á öðrum hafsvæðum við Norður-Atlantshaf virðist vera minna magn af plasti í fýlum hér við land, miðað við niðurstöður rannsókna árin 2018 og 2019.