Þórarinn: „mikið óskaplega hlýtur þeim að líða illa á sálinni“

Í bakþönkum Fréttablaðsins í dag ræðir Þórarinn Þórarinsson um Hinsegin daga, sem nú standa yfir, og þá sérstaklega Gleðigönguna, sem mun fara fram á morgun. Hann tekur þar sérstaklega fyrir fólk sem agnúast út í gönguna.

„Þótt fólk sé alls konar, hinsegin og jafnvel líka svona, erum við í eðli okkar hvorki góð né ill. Hins vegar er fólk annaðhvort leiðinlegt eða skemmtilegt. Þau skemmtilegu ætla að fagna fjölbreytileikanum og þá óhjákvæmilega lífinu um leið í skrúðgöngu á morgun,“ segir Þórarinn.

Hann segir að andlegur þroski sé ekki fremur en vitið í askana látið og að því setji sumt fólk sig upp á móti Gleðigöngunni. „[S]ú gleðiganga [er] eitur í beinum sorglega margra sem þjakaðir af andlegum næringarskorti naga þá sturluðu ranghugmynd að allir eigi að vera eins. Og það sem verra er, nákvæmlega eins og þeir.“

„Þetta fólk er ekki endilega illt en leiðinlegt er það. Þau eru bara „svona“ í stjórnlausum ótta við allt „hinsegin“ með þráhyggjukennda þörf fyrir að skipta sér af því hvernig annað fólk er og kýs að lifa lífinu,“ bætir Þórarinn við.

Hann segir þetta fólk eiga það sameiginlegt að líkjast Baldri Muller, sem skrifar gjarna þröngsýnar og hatursfullar færslur á „Stjórnmálaspjallinu,“ fjölmennum Facebook-hóp. „Sauðirnir í þessu leiðindafé eru eðli málsins samkvæmt ekki allir nákvæmlega eins en rúmast þó allir undir einföldu regnhlífarhugtaki, svokölluðu „Mullers-heilkenni“ með vísan til útskýringaglaða og ímyndaða forystuhrútsins Baldurs Muller,“ segir Þórarinn. Enginn Baldur Muller er til í þjóðskrá og því um dulnefni að ræða.

„Meininu fylgir meðal annars að finnast transfólk vera „djöfulsyns viðbjóður“. Ágætt en dapurlegt og handahófskennt dæmi um að þessum rolum og rollum er fyrst og fremst vorkunn. Mikið óskaplega hlýtur þeim að líða illa á sálinni sem mega ekkert sjá sem er öðruvísi án þess að æla svartagalli,“ bætir hann við.

Að lokum veitir Þórarinn þessu fólki góð ráð: „Góðu heilli má slá á heilkennið og jafnvel finna smá gleði í hjarta með einfaldri Mullers-æfingu. Prufa bara að kyngja ælunni, kasta af sér sauðskinnsskónum, dressa sig upp í eitthvað annað en mórautt og skella sér í gönguna. Þar er ekkert að óttast vegna þess að ólíkt samkynhneigð og alls konar öðruvísi kynvitund eru gleðin og hamingjan smitandi.“