Hafsjór af rannsóknum hafa verið gerðar um framhjáhald í því skyni að öðlast skilning á því hvað fær fólk til að halda framhjá. Margar þessara rannsókna varpa óvæntu ljósi á framhjáhald og draga fram ýmsar staðreyndir sem koma flestum á óvart.
Sumar niðurstöðurnar eru rökréttar en aðrar eru beinlínis skrýtnar. Vissir þú þetta um framhjáhald?
- Þú gætir haft arfgenga tilhneigingu til framhjáhalds
Ef þú heldur framhjá getur verið að þú getir kennt genunum um. Þeir sem hafa hið svokallaða áhættusæknigen í sér hafa meiri tilhneigingu til fjöllyndis og ótryggðar í ástarmálum.
- Konur halda að karlar með djúpar raddir séu líklegri til að halda framhjá
Í rannsóknargrein sem birt var í tímaritinu Personality and Individual Differences kemur fram að konur álíta karla með djúpar raddir líklegri til að halda framhjá. Var þetta fundið út með því að láta hóp kvenna hlusta á misdjúpar karlmannsraddir og síðan spyrja þær hverja þær teldu líklegri til að halda framhjá og hverja ekki.
- Þeim sem halda framhjá þykir maki sinn meira aðlaðandi en viðhaldið
Þetta kemur eflaust mörgum mjög á óvart. Vefsíðan Victoria Milan er hönnuð fyrir fólk í leit að elskhuga utan hjónabands. Könnun sem síðan gerði meðal notenda sinna leiddi í ljós að meirihluta þeirra fannst maki sinn meira aðlaðandi en viðhaldið.
- Karlmenn sem halda framhjá eru líklegri til að fá hjartaáfall en trygglyndir karlmenn
Rannsókn sem gerð var í Háskólanum í Flórens leiddi í ljós að hjartaáföll við kynmök eru algengari þegar giftir karlmenn hafa mök við frillur sínar en við eiginkonur.
- Konur eru líklegri til að halda framhjá ef mæður þeirra hafa gert það
Í könnun sem bresk stefnumótasíða lét gera kom í ljós að 73% kvenna sem játuðu að hafa haldið framhjá áttu mæður sem einnig höfðu haldið framhjá.
- Flest ungt fólk lítur á daður á netinu sem framhjáhald
Vefsíðan Fusion gerði könnun meðal notenda sinna á aldrinum 18-38 ára um afstöðu þeirra til daðurs fólks í sambandi við aðra á netinu. Áttatíuogtvö prósent svarenda sögðust álíta daður á netinu vera framhjáhald.
- Miðvikudagar eru framhjáhaldsdagar
Af einhverjum ástæðum eiga flestir ástarfundir giftra með öðrum en makanum sé stað á miðvikudögum milli klukkan 17 og 19. Ástæðan er ekki kunn.
Birt í samstarfi við Heilsutorg.is - Sjá fleiri greinar hér.