Sorgarsaga gallaðs kerfis: „enginn getur fært mér dóttur mína til baka, en kannski get ég bjargað dóttur einhvers annars“

„Félagi minn var að segja mér sína sorgarsögu. Flestir Íslendingar þekkja dæmi um fólk sem nær ekki sambandi við heilbrigðisstarfsmann, fær ekki meðferð fyrr en eftir dúk og disk eða þarf að útskrifast allt of fljótt. Sem betur fer enda fæstar sögurnar með svona raunalegum hætti.“

Þetta segir Benedikt Jóhannesson, einn stofnenda Viðreisnar í pistli í Morgunblaðinu. Félagi Benedikts hafði misst dóttur sína og er hún ein þeirra sem hefði ekki átt að deyja. Félagi hans sagði:

„Enginn getur fært mér dóttur mína til baka, en kannski get ég bjargað dóttur einhvers annars með því að halda áfram að jagast í kerfinu.“

Benedikt segir að allir geri sér grein fyrir að bæta þurfi þjónustu í heilbrigðiskerfinu en eina leiðin sem stjórnmálamenn virðast horfa til sé að setja meiri pening í ríkisstofnanir í stað þess að horfa til þess að styrkja einkareknar stofur. Benedikt segir: „Nú er mikill halli á rekstri Landspítalans, en þegar hann er búinn með sinn kvóta af aðgerðum má ekki færa þær á einkareknar stofur heldur eru þær sendar öðrum ríkisreknum stofnunum, til dæmis á Akranesi eða Akureyri. Alverstu dæmin eru þegar aðgerðir eru sendar úr landi til þess að koma í veg fyrir að vel hæfar einkastofur á Íslandi sinni þeim.“ Þá vitnar Benedikt í Ágúst Kárason bæklunarlækni en hann sagði í viðtali við Morgunblaðið:

„Það er eins og það sé heilaþvottur í gangi um það að það þurfi allt að vera ríkisrekið inni á spítölunum, en misskilningurinn er sá að sérfræðikerfið, sem hefur alltaf verið með samning við Sjúkratryggingar, er hluti af opinbera kerfinu. Ef það leggst niður mun það þýða það að þjónustan á spítölunum verður verri og það myndast alvöru tvöfalt kerfi.“

Þá segir Benedikt að hluti af trúarbrögðum núverandi ríkisstjórnar sé að láta heilbrigðisráðherra, Svandísi Svavarsdóttur, beita sér gegn nýliðun sérfræðilækna utan sjúkrahúsa og koma í veg fyrir að sérfræðilæknar geti opnað stofur utan spítala. Í þessu samhengi bendir Benedikt á að apótek séu einkarekin, tannlæknastofur, sjúkraþjálfun og elliheimili. Hann segir svo í lok pistilsins.

„Sjálfstæðisflokkurinn sagðist á sínum tíma styðja einkarekstur en núverandi ríkisstjórn stefnir í þveröfuga átt. „Þetta er ríkisvæðingarstefna dauðans, þessi aðstaða er öll til hjá sérfræðingum utan spítalans,“ sagði Ágúst Kárason. En ríkisstjórnin hlustar ekki.“