Smári McCarthy, þingmaður Pírata starfaði í nokkur ár við rannsóknir á spillingarmálum. Aðstoðaði Smári við að rannsaka mál víða í Evrópu sem og í Bosníu. Smári sagði í samtali við RÚV í kvöld að misjafnt væri eftir löndum hvernig tekið væri á vafasömum gjörningum.
Smári segir að fram til þessa hafi lítið komið frá íslenskum stjórnvöldum. Þá barst talið að þeirri ákvörðun Kristjáns Þórs Júlíussonar, Sjávarútvegsráðherra þeirra Sjálfstæðismanna, en þessi fyrrverandi starfsmaður Samherja hefur lýst yfir að hann ætla að segja sig frá öllum málum er snerta sjávarútvegsfyrirtækið. Þess má geta að Samherji á fimmtung alls kvóta í landinu. Smári sagði í samtali við RÚV:
„Þannig að maður þarf að spyrja sig, ætlar hann ekki að segja sig frá öllu kvótakerfinu og er þá mikið eftir af starfi sjávarútvegsráðherra.“ Þá bætti Smári við:
„Það er spurning hvort okkar góða uppbyggingarstarfi víða í Afríku sé teflt í hættu vegna þess að nú gætu einhver lönd haldið að við séum á einhvern hátt að undirbúa jarðveginn fyrir einhvers konar misnotkun í framtíðinni.“
Til að takmarka og bæta tjónið er ein hugmynd Smára að taka upp samvinnu við ríkisstjórn Namibíu þess efnið. Smári sagði að lokum að Íslendingar væru ekki á FATF-listanum fyrir tilviljun.
„Þetta er kerfisbundin linkind gagnvart spillingu.“