Undanúrslitakvöld Skrekks, hæfileikahátíðar skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, hefst í kvöld og verður á hverju kvöldi til 6. nóvember næstkomandi í Borgarleikhúsinu. Fulltrúar átta grunnskóla í Reykjavík keppa á sviðinu á hverju undanúrslitakvöldi með það að markmiði að komast á lokahátíðina.
Alls taka 24 grunnskólar þátt í Skrekk þetta haustið, en átta þeirra keppa til úrslita á lokahátíðinni þann 11. nóvember. Undanúrslitakvöldin verða sýnd í vefútsendingu á UngRÚV en lokahátíðin verður í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV. Yfir 600 unglingar taka þátt í frumsömdum atriðum sinna skóla og spreyta sig í leiklist, söng, dansi, hljóðfæraleik, búningahönnun, förðun ljósum, hljóði og annarri sviðsvinnu.
Klukkan 18 á undanúrslitadögunum verður sameiginleg upphitun allra þátttakenda á stóra sviðinu og mikil stemming. Í kvöld munu 234 unglingar hita upp saman á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu.
Dómnefnd í undanúrslitum skipa þau Greta Salóme, Donna Cruz, Ernesto Camilo, Viktor Örn og Sigfríður Björnsdóttir, formaður dómnefndar.