Segir bjarna lítillækka katrínu: „ekkert sem stoppar bjarna eða vilja hans“

Í pistli á Miðjunni í dag segir Sigurjón Magnús Egilsson, ritstjóri miðilsins, að Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sé í raun sá sem haldi um stjórnartaumana í ríkisstjórn og lítillækki þannig Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.

Sigurjón segir Bjarna fyrir löngu hafa fellt grímu hagsmunagæslunnar. „Hann þarf hana ekki. Í íslenskum stjórnmálum er ekkert, alls ekkert, sem stoppar Bjarna eða vilja hans. Bjarni hætti að pukrast með hagsmunagæsluna þegar hann setti Kristján Þór í stól sjávarútvegsráðherra, fyrrverandi formann Samherja. Stærstu útgerðar landsins. Síðan hafa veiðigjöld verið lækkuð svo um munar. Allt gengur upp hjá Bjarna.“

Hann telur Katrínu vera eitt fórnarlamba Bjarna. „Katrín varði löngum tíma í samningaviðræður við Sigmund Davíð um þinglok. Bjarni hélt sig fjarri en sendi Birgi Ármannsson á þá fundi sem Bjarna var ætlað að sitja. Katrín náði samkomulagi við Sigmund Davíð um framhaldið á Alþingi. Bjarni beitti fjarstýringunni á Katrínu og Alþingi allt. Hann sagði bara nei,“ segir Sigurjón og vísar til fréttar RÚV um að fyrirhugað samkomulag við Miðflokkinn um þinglok hafi strandað á því að Bjarni hafi hafnað því.

„Og sú er staðan. Bjarni opinberar það sem hann vill. Nú opinberaði hann yfirburði sína yfir Katrínu og öllum öðrum í þinghúsinu. Það er bara einn aðal. Það er bara einn Bjarni Benediktsson,“ bætir hann við.

Sigurjón segir að lokum að þessari stöðu fagni Bjarni. „Flestir Íslendingar gerðu sér vonir um Katrínu, sem var lengi vel vinsælust íslenskra stjórnmálamanna, vonir sem ekki hafa ræst. Bjarni gerði sér aðrar vonir um Katrínu, vonir sem hafa allar ræst. Og Bjarni fagnar.“