Sauð uppúr á bingókvöldi á gullöldinni

Óskað var eftir aðstoð lögreglu á Gullöldinni í Grafarvogi. Kona sem tók þar þátt í bingó var afar ósátt við störf bingóstjóra kvöldsins og sakaði hann um svindl. Önnur kona ákvað þá að koma bingóstjóranum til varnar og var hún þá slegin í andlitið.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá þessu. Annars var nóttin með rólegasta móti hjá lögreglunni en nokkuð var um að ökumenn væru teknir undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.