Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi voru rétt í þessu að senda frá sér fréttatilkynningu vegna málefni Samherja. Segja samtökin að það hafi ætíð verið afstaða þeirra að félagsmenn þeirra skuli fara eftir lögum og reglum.
„Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi vilja taka fram vegna umræðu um starfsemi Samherja hf. í Afríku, að það hefur ætíð verið afstaða samtakanna að allir félagsmenn skuli fara að lögum og eftir reglum. Gildir þá einu hvar viðkomandi starfsemi fer fram, á Íslandi eða í útlöndum.“
Þá segja samtökin að það sé brýnt að mál Samherja verði rannsakað.
„Hvað varðar framkomnar ásakanir á hendur Samherja hf., þá eru þær í eðli sínu alvarlegar og það er fyrirtækisins að bregðast við þeim. Ljóst er að mál af þessu tagi getur haft áhrif á orðspor íslensks sjávarútvegs og stöðu á alþjóðlegum markaði. Því er brýnt að málið verði rannsakað og hið rétta komi fram. Það er allra hagur, ekki síst þeirra sem bornir eru þungum sökum.“
Hringbraut hefur reynt að ná tali af Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, en án árangurs. Samkvæmt Benedikt Sigurðssyni, upplýsingafulltrúa samtakanna, er hún stödd í London á ársfundi Norðaustur Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar.