Rúta með 23 farþegum endaði út í á undir eyjafjöllum - björgunarsveit komin á vettvang

Klukkan 8:12 voru björgunarsveitir á suðurlandi kallaðar út vegna rútu sem farið hafði útaf þjóðveginum við Hafurshól undir Eyjafjöllum. Rútan endaði út í á en ekkert amar að farþegunum 23 sem eru um borð.

Í tilkynningu frá Landsbjörg eru viðbragðsaðilar komnir á vettvang og þarf að selflytja farþegana með björgunarsveitarbílum úr rútunni, þeir verða fluttir í fjöldahjálparstöð sem Rauði krossinn hefur opnað í Heimalandi.

Snarvitlaust veður er á svæðinu og fer vindur upp í 40 m/s í vestu hviðum. Í gildi er gul viðvörun frá Veðurstofu Íslands.

\"\"