Reynisfjöru lokað eftir berghrun: barn og karlmaður slösuðust – lögreglan birtir myndband

Lögregla hefur nú lokað fyrir umferð fólks í Reynisfjöru að hluta vegna hruns úr berginu austarlega, yfir fjörunni. Samkvæmt upplýsingum lögreglu slösuðust tveir þegar þeir fengu gjót á sig, annars vegar karlmaður um tvítugt og hinsvegar barn. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar á Suðurlandi. Þar segir ennfremur:

„Meiðsl þeirra munu þó ekki vera alvarleg. Verið er að skoða aðstæður á vettvangi og meta hvort og til hvaða aðgerða verður gripið umfram það sem búið er að loka.“