Reiknaðu kolefnissporið þitt - „þetta reddast ekki, nema við minnkum kolefnissporið núna“

Orkuveita Reykjavíkur og EFLA verkfræðistofa hafa nú gert öllum aðgengilegan kolefnisreikni á netinu. Þar getur fólk reiknað kolefnisspor sitt á einfaldan og fljótlegan hátt. Þá eru gefin ráð um hvernig minnka megi eigið kolefnisspor út frá þeim upplýsingum sem slegnar eru inn. Neysludrifið kolefnisspor íbúa á Íslandi er um 12 tonn CO₂ ígilda á ári en mætti ekki vera meira en 4 tonn til að halda hnattrænni hlýnun innan 1,5°C markmiðs Parísarsamkomulagsins um aðgerðir gegn loftslagvánni.

Kolefnisreikninum er skipt upp í þá fjóra þætti sem hafa mest áhrif á stærð kolefnissporsins. Þættirnir endurspegla það val sem við stöndum frammi fyrir á hverjum degi hvað varðar ýmsar vörur, þjónustu, matvæli og ferðalög. Almennt er kolefnisspor bíl- og flugferða stærsti hluti kolefnisspors meðal-Íslendingsins enda meginhluti þessara samgangna knúinn jarðefnaeldsneyti. Orkunotkun húsnæðis vegna hitaveitu og rafmagns hefur hins vegar lítil áhrif á kolefnissporið enda orkan þar græn.

Í kolefnisreikninum sér hver og ein sem slær inn upplýsingar um sínar venjur eigið kolefnisspor í samanburði við kolefnispor almenns íbúa á Íslandi. Einnig sést samanburður við það hversu lítið kolefnissporið þarf að vera til að ná markmiðum Parísarsamkomulagsins um að halda hnattrænni hlýnun árið 2100 innan við 1,5°C, miðað við hitastig fyrir daga iðnbyltingarinnar. Útreikningur á kolefnisspori ferða, matar, húsnæðis og neyslu styðst við vistferilsgreiningar sem er stöðluð aðferð til að meta umhverfisáhrif þjónustu og vöru á öllum líftíma þeirra - frá vöggu til grafar. Upplýsingar sem slegnar eru inn eru ekki persónugreinanlegar.

„Það er á ábyrgð okkar allra að bægja burt loftslagsvánni. Ríki og sveitarfélög verða að gera sitt, fyrirtæki þurfa að taka sig taki og hvert og eitt okkar getur lagt lóð á vogarskál þess að jörðin verði lífvænlegri fyrir komandi kynslóðir. Þetta reddast ekki, nema við minnkum kolefnissporið núna. Við vonum að fólki líki vel við kolefnisreikninn okkar og að hann hjálpi fólki að átta sig á hvaða hluti neyslu okkar hefur mest áhrif á stærð kolefnissporsins og hvernig hægt er smækka það. Við erum jafn misjöfn og við erum mörg. Þess vegna skiptir það máli að hvert og eitt okkar sjái hvar við getum breytt hegðunarmynstri okkar,“ segir Hólmfríður Sigurðardóttir, umhverfisstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.