Öryrkjabandalagið segist vilja brýna fyrir stjórnvöldum að stíga skrefið til fulls og afnema skerðinguna að fullu

Alþingi samþykkti eins og kunnugt er, frumvarp félags og barnamálaráðherra um lækkun skerðinga bóta vegna annara tekna lífeyrisþega. Breytingin var afturvirk, og gildir frá 1. janúar 2019. Tryggingastofnun hefur nú tilkynnt að í síðustu viku ágústmánaðar, munu þeir sem rétt eiga á hækkun greiðslna vegna fyrstu átta mánaða ársins, fá þær greiðslur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá öryrkjabandalaginu.
 

Tekjuviðmið breytast þannig að 65% af skattskyldum tekjum örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hafa nú áhrif á útreikninginn í stað 100% áður. Aldurstengd örorkuuppbót hefur nú 50% vægi í stað 100% áður. Bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð, aðrar en aldurstengd örorkuuppbót, hafa áfram 100% vægi. 

Öryrkjabandalag Íslands segist líta á þessa lagabreytingu sem hænuskref í þá átt að afnema að fullu þá skerðingu sem króna á móti krónu, nú 65 aurar á móti krónu er, og segist velta því áfram fyrir sér hvers vegna svo erfiðlega gangi að fá ríkisstjórn til að afnema að fullu þessa skerðingu.

Enn fremur segir bandalagið að aðeins þannig verði fötluðu fólki opnuð leið inn á vinnumarkaðinn án þess að þurfa að kaupa sig inn á hann. Skerðing sé áfram til staðar, bara aðeins minni. Öryrkjabandalagið segist vilja brýna fyrir stjórnvöldum að stíga skrefið til fulls og afnema skerðinguna að fullu.