„Fréttin kom frá Rúnari Snæ Reynissyni. Þar var sýnt hvernig vængir voru höggnir af rjúpu og hún síðan skorin og tætt í sundur. Algjört virðingarleysi við þennan fallega og skaðlausa fugl, þessa tignarlegu lífveru, sem auðgar og fegrar náttúru Íslands með fegurð sinni og líflegu korri.“
Þetta segir Ole Anton Bieltvedt, stofnandi dýra-, náttúru- og umhverfisverndarsamtakanna Jarðarvina í pistli á Hringbraut en hann gagnrýnir fréttastofu RÚV harðlega fyrir að hafa í kvöldfréttum síðastliðin föstudag fjallað um veiðar á rjúpu, sem var í fréttunum kallað hluti af sjálfbærninámi Hallormsstaðarskóla. Ole Anton segir það nafn fínt en hafi á engan hátt átt við þarna. Bætir Ole við að Rúnar Snær fréttamaður og RÚV séu sek um tilfinningakulda í garð rjúpunnar sem og virðingarleysi almennt við villt dýr, náttúru og lífríki landsins. Ole segir:
„Börn og unglingar horfa auðvitað líka á kvöldfréttir. Þessi heiftarlega meðferð á rjúpunum gat verið eins og kennslustund í því að þetta eru „bara dýr“, í raun bara hlutir sem drepa má, mishöndla og misbjóða að vild og engan rétt eða virðingu eiga skilið.“
Bætir Ole Anton við að hefði verið um matreiðsluþátt að ræða hefði mátt líta öðrum augum á drápin en hvernig það eigi að teljast til sjálfbærnináms Hallormsstaðarskóla finnst Ola Anton óskiljanlegt. Hann segir rjúpuna standa höllum fæti og stofninn hafa dregist saman og hefði viljað banna veiðar í ár. Þá gagnrýnir Ole Anton aðra frétt um dráp á dýrum en þann 15. septermber hafi verið fjallað um dráp á gæsum og þá aftur snúið að sjálfbærnimámi í Hallormsstaðarskóla.
„ ... þó að þetta „nám“ hafi gengið út á og sýnt dráp á gæsum með haglabyssu, og voru fuglarnir ekki kallaðir gæsir heldur „hráefni“. Þessi frétt var líka frá Rúnari Snæ. Góður smásagnahöfundur, er sagt, en tilfinningalítill fyrir dýrunum og lífríkinu virðist vera,“ segir Ole Anton og bætir við:
„Sýnt var hvernig skotið var á fljúgandi gæsahóp eftir að farið var að rökkva og illa sást til og sást hvar tvær eða þrjár féllu til jarðar sýnilega dauðar. „Hráefni“. Engum sögum fór af þeim fuglum sem komust undan, særðir af höglum, án þess að drepast strax, eða af dauðastríði þeirra næstu daga. Þetta þótti fréttastofu greinilega líka flott og skemmtilegt; fín frétt.“
Þá heldur Ole Anton áfram að beina orðum sínum til útvarpsstjóra og segir undir lokin:
„Æskilegt væri að þú eða eftirmaður þinn færuð ofan í saumana á málefninu dýra-, náttúru- og umhverfisvernd við fréttamenn ykkar og að ráðherra hefði þennan mikilvæga framtíðarþátt líka í huga við skipan eftirmanns þíns. Því fær hún afrit.“
Hér má lesa pistil Ole Antons á vef Hringbrautar.