Ökumaður á slysadeild eftir veltu í grafarvoginum

Ökumaður jeppa sem valt á Borgarvegi í Grafarvogi um 11 leitið í morgun var fluttur á slysadeild til skoðunar. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var ökumaðurinn minniháttar slasaður og komst hann sjálfur út úr bílnum.

Bíllinn hafnaði á hvolfi eftir veltuna og er fólki bent á að aka í samræmi við aðstæður en snjór og frost er farið að sjást á götum höfuðborgarsvæðisins.