Myndband dagsins: kolbeinn jafnaði markamet eiðs smára – sjáðu markið

Myndband dagsins birti RÚV á Twitter. Þar má sjá Kolbein Sigþórsson koma Íslandi í 2-0 gegn Andorra í leik liðanna í undankeppni EM. Kolbeinn var að skora sitt 26 mark í aðeins 54 leikjum. Þar með jafnaði hann markamet Eiðs Smára Guðjohnsen. Markið skoraði Kolbeinn eftir frábæra sendingu frá Ragnari Sigurðssyni.

Markið má sjá hér að neðan.

Kolbeinn Sigþórsson er búinn að jafna markamet @Eidur22Official fyrir landsliðið. 26 landsliðsmörk. Ísland er komið í 2-0 á móti Andorra. #ISLAND pic.twitter.com/pAhhFlE5PG

— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 14, 2019