„Lögreglan á Suðurlandi fékk tilkynningu laust eftir klukkan þrjú í dag þess efnis að rjúpnaveiðimaður hefði orðið fyrir slysaskoti í Eldhrauni skammt vestan við Kirkjubæjarklaustur. Í tilkynningunni til lögreglu kom fram að skotið hefði hafnað í öðrum fæti mannsins. Slysið mun hafa orðið með þeim hætti að hinn slasaði missti byssuna með þeim afleiðingum að skot hljóp úr henni með fyrrgreindum afleiðingum.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en óhappið átti sér stað um miðjan dag í gær. Í tilkynningu lögreglu segir enn fremur:
„Það voru veiðifélagar mannsins sem kölluðu eftir aðstoð og veittu hinum slasaða fyrstu hjálp og sýndu með því hárrétt viðbrögð við slysinu.
Var hinn slasaði með fulla meðvitund allan tímann en um er að ræða karlmann á sjötugsaldri. Var hann fluttur til aðhlynningar á heilsugæsluna á Kirkjubæjarklaustri en þar mat læknir áverkana á fæti mannsins það alvarlega að kallað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Var hinn slasaði fluttur með sjúkrabifreið til móts við þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-LÍF sem lenti á flugvellinum austan við Vík í Mýrdal um klukkan 16:00. Þaðan var flogið með hinn slasaða á Landspítala -háskólasjúkrahús í Fossvogi.“