Mynd dagsins: þetta er duglegasti maðurinn í borginni

Mynd dagsins birti Egill Helgason á Eyjunni. Kveðst Egill hafa fundið duglegasta starfsmanninn hjá Reykjavíkurborg. Egill segir:

„Þetta er hann Lezek Tara. Ég hef verið með þá kenningu að hann sé duglegasti maður í Reykjavík. Alla daga er hann á ferð og flugi að þrífa borgina. Ég sé hann eiginlega aldrei stoppa, hann hleypur við fót milli litlu bifreiðarinnar sem hann keyrir á og öskutunnanna sem hann tæmir.“

\"\"

Þá segir Egill enn fremur:

„Á menningarnótt í fyrra var Lezek svo víða um borgina að ég hafði á tilfinningunni að hann hefði einn haldið borginni hreinni eftir hana.

Við þekkjumst ekki mikið við Lezek, en við höfum lengi heilsast. Hann er yfirleitt glaður í bragði og kastar á mann kveðju á förnum vegi. Ég er á þeirri skoðun að þetta sé eiginlega alveg ómetanlegur maður. Hann vinnur mikið gagn og setur svip á bæinn.“