Mynd dagsins: „bjarni „böstaður“ af lögreglunni – „ættu að vita að maður sem keyrir á þessum hraða er að flýta sér!“

„Loksins var ég böstaður. Í áratugi hef ég keyrt hratt um götur bæjarins. Þetta er svona „serial“ brota thing. Þegar maður er „serial“ þá vill maður innst inni nást in the end einsog allir vita. Skráður hraði var 83km á Sundabraut (Sæbraut) og 50.000 kr. sekt.“

Þetta segir athafnarmaðurinn Bjarna Ákason á Facebook en hann rak  um árabil Apple-umboðið Epli. Bjarni gaf Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta mynd dagsins.

\"\"

„Eitt sem pirrar mig er hvað löggan er lengi að ganga frá skýrslu og láta mig skrifa undir, heilar 15 mínútur,“ segir Bjarni og slær á létta strengi í lokin:

„Þeir ættu að vita að maður sem keyrir á þessum hraða er að flýta sér!“