Mynd af slysstað: flugmaðurinn gekk á móti björgunarmönnum

Flugmaður eins hreyfils flugvélar, sem lenti á Skálafellssvæðinu á þriðja tímanum í dag, hefur verið fluttur á Landspítalann. Tilkynning um atvikið barst rétt fyrir klukkan þrjú. Í henni var greint frá dökkum reyk, en fljótlega barst boð frá neyðarsendi flugvélar á svæðinu.

Viðbragðsaðilar brugðust skjótt við og fór þyrla Landhelgisgæslunnar á vettvang, en áhöfn hennar fann manninn og flutti á Landspítalann eins og áður sagði. Flugmaðurinn gekk á móti áhafnarmeðlimum og var fluttur á brott.

Flugvélin er sömuleiðis fundin en það logaði í flakinu þegar komið var að því.  

Fulltrúar frá rannsóknarnefnd samgönguslysa og tæknideild lögreglunnar eru á leið á slysstað.