Magnús sár: rekinn og segir frá fundinum – „hef ég brotið af mér? hef ég staðið mig illa?“

Magnús Ólason sem hafði starfað í tugi ára við góðan orðstír frá 1985 á Reykjalundi sem framkvæmdastjóri lækninga segir í samtali við Læknablaðið að hann hafi verið tilbúinn til að ljúka störfum þar til annar myndi koma í hans stað. Hann var rekinn án nokkurrar ástæðu og segir sárt að sjá stoðunum kippt undan ævistarfinu. Í samtali við Læknablaðið opnar hann sig um hvað fór fram á fundinum. Magnús segir:

„Ég var undir það búinn að hætta að vinna. Það var ekki vandamálið, en ég var ekki undirbúinn undir að vera látinn fara fyrirvaralaust án nokkurrar ástæðu. Engar skýringar gefnar,“

Óánægja starfsmanna er enn mikil. Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir hefur verið ráðinn í starf Magnúsar. Kom það honum á óvart þar sem Magnús er ekki endurhæfingarmenntaður. Hann hafði því boðist til að vinna þar til starfið yrði auglýst að nýju svo fleiri sæktu um þegar öldurnar hefði lægt. Um brottreksturinn segir Magnús:

„Ég fékk engar skýringar á uppsögninni. Ég spurði: „Hef ég brotið eitthvað af mér?“ Nei, nei, nei. „Hef ég staðið mig illa í starfi?“ Nei, nei, nei. Þetta var aðeins liður í einhverju ferli sem málið var komið í.“ Magnús bætir við:

„Ég var auðvitað tilbúinn að hætta en ég ætlaði ekki að hætta svona. Mér finnst þessi gjörningur í raun svo makalaus og svo vitlaus. Ég er aðallega sár út í að með ákveðnum hætti sé verið að eyðileggja þennan stað sem ég hef lagt krafta mína í frá því að ég kom heim úr sérnámi.“