ADHD samtökin mótmæla harðlega breyttum inntökuskilyrðum sem Mennta- og starfþróunarsetur lögreglurnar hefur nýverið upplýst um. Þar er í fyrsta sinn hérlendis þrengt verulega að atvinnu- og menntamöguleikum fólks með ADHD. Telja samtökin um brot á mannréttindum sé að ræða og stjórnarskrárbrot. ADHD/ADD getur verið útilokandi þáttur eins og sjá má hér fyrir neðan.
Þau sem hafa áhuga á að starfa fyrir lögregluna þurfa að skila inn vottorði. Á vef Mennta og starfsþróunarsetur lögreglunnar segir:
„Greiningin ADHD/ADD getur verið útilokandi þáttur, sérstaklega hjá einstaklingum sem eru á lyfjameðferð vegna ADHD. Hafi umsækjandi fyrri sögu um slíka greiningu þarf viðkomandi að leggja fram vottorð sérfæðilæknis sem lögð verður til grundvallar mati trúnaðarlæknis í hverju tilviki.“
ADHD samtökin telja þessa kröfu byggða á vanþekkingu, úreltum hugmyndum og stangast beinlínis á við lög og vísindalega þekkingu um ADHD og virkni ADHD lyfja. Þá er ADHD/ADD flokkað með geðsjúkdómum á vef lögreglunnar, en ADHD/ADD er ekki geðsjúkdómur.
Á sama tíma og lögreglan hér á landi setur þessi skilyrði, sem heimildarmenn Hringbrautar segja sé brot á stjórnarskrá og mismunun, hafa yfirvöld hermála í Noregi afnumið takmarkanir á inntöku einstaklinga með ADHD. Á vef ADHD samtakanna segir:
„Fráleitt er að setja svo alvarlegar og almennar skorður við atvinnufrelsi fólks með ADHD, líkt og nýjar reglur Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar gera ráð fyrir.“
Þá skora ADHD samtökin á Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar, ríkislögreglustjóra og ráðherra málaflokksins, að afturkalla nýju inntökureglurnar nú þegar, þar sem markmið þeirra virðist það eitt að útiloka fólk með ADHD frá störfum innan lögreglunnar. Þá segir einnig á vef samtakanna:
„Einnig má færa rök fyrir því að reglurnar gætu orðið til þess að þeir lögreglumenn sem eru nú þegar starfandi og eru með greint eða ógreint ADHD veigri sér við að leita sér aðstoðar, sem svo aftur getur haft neikvæð áhrif á starfsgetu þeirra innan lögreglunnar.“