Lögreglan fór ekki út fyrir valdheimild sína við handtöku elínborgar í gleðigöngunni

Samkvæmt niðurstöðu nefndar um eftirlit með lögreglu fór lögregla ekki út fyrir valdheimild sína í sumar þegar Elínborg H. Önundardóttir var handtekin í Gleðigöngunni né þegar piparúða var beitt á mótmælendur á Austurvelli þann 11. mars.

Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni í dag og segir þar að nefndin hafi ekki séð ástæðu til þess að aðhafast frekar vegna málanna.