Katrín kveður jökul: „fegurðin dvínar í augum okkar sem vitum hvað var þarna áður“

„Í dag kveðjum við formlega jökulinn Ok en hann er fyrstur íslenskra jökla til að hverfa á tímum loftslagsbreytinga. Landslagið er vissulega enn þá fallegt, en fegurðin dvínar í augum okkar sem vitum hvað var þarna áður og hvers vegna það er horfið.“

Þannig hefst pistill eftir Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra sem hún birtir á samfélagsmiðlum. Katrín segir að staðan í dag sé fordæmalaus.  

„Í dag er tími aðgerða því afleiðingar hamfarahlýnunar blasa við um heim allan. Hitabylgjur, flóð, þurrkar og öfgakenndar sveiflur eru birtingarmyndin og valda neyð og hörmungum.“

Þá segir Katrín að á Íslandi sé stefnt að kolefnishlutleysi í síðasta lagi 2040 en mikilvægt sé að sýna árangur strax. Katrín segir:

„Nú þegar eru aðgerðir hafnar samkvæmt aðgerðaáætlun stjórnvalda sem kynnt var í fyrra og um leið höfum við bætt við frekari aðgerðum. Við munum sjá nýja græna skatta og lækka álögur á rafhjól sem lið í að draga úr bílaumferð. Með verkefnum í landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis sem eru þegar farin af stað munum við binda 50% meira kolefni árlega árið 2030 en við gerum í dag.“

Katrín bætir við: „Til að setja umfangið í samhengi endurheimtum við í fyrra votlendi á stærð við um 63 fótboltavelli en árið 2022 munum við endurheimta votlendi á stærð við 700 fótboltavelli. Sama ár verða landgræðsluverkefni á svæði á stærð við tæplega 17.000 fótboltavelli og skógrækt á öðrum ríflega 3000 völlum.“

Katrín segir einnig mikilvægt að nýta hvert tækifæri á alþjóðavettvangi. Katrín segir að lokum: „... að láta í okkur heyra og stilla okkur þar upp í fararbroddi með öðrum þjóðum sem vilja leggja sitt af mörkum. Við verðum að gera þetta saman: fyrir jöklana, fyrir framtíðina og fyrir okkur sjálf.“