Íslendingar hafa litlar sem engar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans. Þetta er niðurstaða úr könnun MMR. Á heimasíðu MMR segir:
„Helmingur landsmanna segist hafa litlar eða engar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakka ESB á hagsmuni þjóðarinnar en um þriðjungur hefur miklar áhyggjur. Þetta kemur fram í könnun MMR sem framkvæmd var dagana 9. - 16. september 2019. Alls kváðust 22% hafa mjög miklar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans, 12% kváðust hafa frekar miklar áhyggjur, 16% bæði/og, 17% frekar litlar áhyggjur og 33% mjög litlar eða engar áhyggjur.“
Þetta kemur fram í könnun MMR. Á heimasíðu MMR segir:
MMR hafði áður mælt hversu fylgjandi eða andvígir landsmenn væru gagnvart innleiðingu þriðja orkupakkans á Íslandi en í könnun sem framkvæmd var í júní 2019 reyndust 46% svarenda andvígir innleiðingunni og 34% hlynntir henni. Má því segja að um ákveðinn viðsnúning hafi orðið í afstöðu almennings til málsins.