Hörku slagsmál í bakgarði við heimahús í keflavík: „æstur eftir átökin og heimtar re-match“

Slagsmál áttu sér stað í bakgarði við heimahús í Keflavík. Frá þessu greinir Lögreglustjórinn á Suðurnesjum á Facebook. Þar hafði annar áflogahundurinn betur líkt og gengur og gerist. Í færslu lögreglunnar segir:

„Það sem er einkennilegt við þessi slagsmál er að sigurvegarinn bar þann sem varð undir í kjaftinum heim til sín, sigri hrósandi, og sýndi eiganda sínum hversu megnugur hann var. Þarna slógust semsagt köttur og hamstur.“

Eigandi kattarins náði hamstrinum úr kjaftinum á kettinum og fór með hann á lögreglustöðina í Reykjanesbæ. Í færslu lögreglunnar segir enn fremur:

„Við leitum því nú af eiganda slagsmálahamstursins sem við höfum gefið nafnið Hamstur Macgregor í kerfum okkar.“

Að sögn lögreglumanna á vakt þá er hamsturinn talsvert æstur eftir átökin og heimtar re-match við kattarófétið (eins og hann orðar það). Það verður vonandi ekki langt í að við á Suðurnesjum náum út eins og einu stöðugildi lögreglumanns sem mun alfarið sjá um vesenið á þessum blessuðu dýrum hér á svæðinu.“

Hér má sjá mynd af hamstrinum. Vinsamlegast deilið svo hann komist aftur til eiganda síns.

\"\"